Hugleiðingar um Gita.

Bókin „Some thoughts on the Gita“,  er stórkostleg bók fyrir alla dulspekinga. Hún er gefin út 1893 af Kumbhakonam Branch Theosophical Society. Titil hennar var upphaflega „Thoughts on Bagavad Gita“. Höfundur bókarinnar, sem upprunalega voru tólf fyrirlestrar sem lesnir voru á jafnmörgum sunnudögum í röð, er óþekktur en kallaði sig  Brahmin F.T.S (F.T.S. stóð fyrir Fellow of the Theosophical Society).

Bókin féll í gleymsku þar til að vitnað var í hana í „A Treatise on Cosmic Fire“. eftir A.A.B. Bókin var þá ljósprentuð 1983 og þannig er hún með upprunalegum prentuðum texta.

Efni bókarinnar er eins og segir í titlinum, hugleiðingar um efni Bagavad Gita, sem er hluti hins forna og merka indverska ljóðabálks  Mahabharata. Hann var upprunalega ritaður á Sankrit fyrir rúmum 5000 árum.  Bagavad Gita fjallar um samtal Arjuna og Krishna. Höfundur tengir hinsvegar kenningar HBP inní í efnið ásamt fjölmörgu öðru. Yfirburða þekking höfundar á dulspekilegri heimspeki kemur á óvart en skilst kannski aðeins þeim sem hafa lesið andlega heimsspeki og eru tilbúnir að leggja talsvert á sig við lesturinn.

Inngangur
Fyrsti fyrirlestur
Annar fyrirlestur
Þriðji fyrirlestur
Fjórði fyrirlestur
Fimmti fyrirlestur
Sjötti fyrirlestur
Sjöundi fyrirlestur
Áttundi fyrirlestur
Níundi fyrirlestur
Tíundi fyrirlestur
Ellefti fyrirlestur
Tólfti fyrirlestur
Hugleiðingar um Gita  Öll bókin.

Skilboð